Indriði Arnar Ingólfsson útskrifaõist úr Listaháskóla Íslands áriõ 2016. Að loknu námi fór hann í starfsnám til Berlínar hjá Jóhanni Jóhannssyni og var næstu árin meira áberandi á sviði tonlistar.

Samhliõa tónlistinni hélt hann þó ótrauður áfram að vinna að myndlist sinni í vinnustofum sínum á Íslandi og í Þýskalandi og tók þátt í ýmsum samsýningum. Indriôi flutti aftur til Íslands árið 2020 og fór þá að stunda myndlist sína af sífellt meiri krafti. Þar með hófst nýr kafli i ferli hans þar sem hann hefur verið að draga fram og þróa verk sem hann hafði unnið að í einrúmi um árabil.

Árið 2025 hélt Indriði einkasýninguna Eldpadda, þar sem hann sýndi úrval oliumálverka og blekteikninga. Sama ár tók hann þátt í samsýningunni Padda i Gallery Port, þar sem hann og Gylfi Sigurðsson unnu með leikgleði teikningarinnar og skömm barnsins. Hann tók einnig þátt i samsýningunni Roadsnacks i Antwerpen, þar sem íslenskir myndlistarmenn sýndu saman í sýningarrýminu Forbidden City.
Indriði hefur einnig tekið þátt i samsýningum erlendis, meðal annars í Clocktower Gallery og The

Outpost Gallery í New York, Gallery Cultura Surplus í Mexikóborg og Urban Spree i Berlín.

Hann hefur jafnframt tekið þátt i fjölmörgum gjörningum, meðal annars W.A.I.D.W.M.L. eftir Styrmi Örn Guðmundsson, sem var sýndur víða um Evrópu og við opnun Litháenska skálans á Feneyjatvíæringnum. Þá var hann performer i verkinu Taktu mig hérna viõ þottavélina eftir Ragnar Kjartansson í Listasafni Reykjavíkur árið 2017 og tók þátt í samstarfsgjörningi Magnúsar Pálssonar og hljómsveitarinnar MUCK, Einsemd/Steypa, I Stand Alone, á Listahátíð Reykjavíkur árið 2014.